Skilmálar

Skilmálar þessir eru samningur um kaup á vöru eða þjónustu í vefverslun Ecomar.  Samningurinn skilgreinir réttindi og skyldur Ecomar annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar.

Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir af kaupanda við nýskráningu á vef Ecomar teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu og staðfestir kaupandi þar með að hann þekki gildandi skilmála vefverslunar Ecomar.

Verðupplýsingar

Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatti, Öll verð eru gefin upp með virðisaukaskatti.   Sé vallið að fá sendingu senda innanlands með Íslandspósti leggst 1.490 kr. sendingargjald við verðið, svo lengi sem sendingin er innan þeirra þyngdar- og rúmmálsmarka sem Íslandspóstur setur um pakka allt að 7 kg. Ef sending er utan þessara marka munu starfsmenn Ecomar hafa samband vegna pöntunarinnar.

Afgreiðsla pantana

Pantanir sem viðskiptamaður óskar eftir að fá afhentar hjá Ecomar er hægt að sækja næsta virka dag eftir að pöntun berst á Selhellu 11, 221 Hafnarfirði

Pantanir sem fara með pósti eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Athugið að innanlandspóstur getur tekið allt að 2-4 daga að berast. Ef valið hefur verið að fá vöru senda þá bætist sendingarkostnaður við skv. ofangreindum skilmálum. Gætið að því að fylla út réttar upplýsingar um heimilisfang við pöntun til að tryggja rétta afhendingu. Ecomar tekur ekki ábyrgð á því ef viðskiptavinir gefa upp rangt póstfang eða eru ekki með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur. Tölvupóstur verður sendur til viðskiptavina þegar vara hefur verið afhent Póstinum.

Skilaréttur

Skilafrestur er 14 dagar frá afhendingu vöru, nauðsynlegt er að varan sé í upprunalegum og óskemmdum umbúðum og ástandi auk þess sem að allir fylgihlutir hennar fylgi. Starfsmenn Ecomar meta ástand vöru og hvort hún sé endursöluhæf. Ecomar áskilur sér rétt til að hafna vöruskilum eða endurgreiða vöru með afskriftum. Endurgreiðsla nær ekki til flutningskostnaðar sem fellur til við afhendingu eða vöruskil. Nauðsynlegt er að framvísa reikningi fyrir kaupum. Sérpöntuðum vörum fæst einungis skilað ef um galla er að ræða í viðkomandi vöru og tæknimenn Ecomar meta að ekki sé hægt að gera við hana eða að það svarar ekki kostnaði. Vörum, sem um er gerður sérstakur samningur og/eða eru fjármagnaðar af þriðja aðila eða Ecomar, fæst aðeins skilað skv. ákvæðum hvers samnings fyrir sig.

Ábyrgðarskilmálar

Ábyrgð seljanda er í samræmi við lög þar að lútandi. Ábyrgð á vörum sem seldar eru til einstaklinga er 2 ár en vörur sem seldar eru til lögaðila 1 ár. Nauðsynlegt er að framvísa gögnum fyrir vörukaupum til að sannreyna ábyrgð á vöru. Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru. Ábyrgð fellur úr gildi ef aðrir en starfsmenn Ecomar hafa átt við vöruna án samþykkis. Ábyrgð nær ekki til  bilana eða tjóns af utanaðkomandi orsökum, svo sem eldsvoða, vatns, þjófnaðar, slyss, verkfalla, rafmagnsbilunar eða spennubreytinga. Ecomar áskilur sér rétt til að sannreyna að um galla sé að ræða áður en endurgreiðsla eða útskipti tækja eiga sér stað. Ecomar ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða við flutning vöru hjá þriðja aðila. Ef kaupandi vill tryggja vöru sérstaklega fyrir flutning þarf það að koma skýrt fram við vörukaup. Sölumenn Ecomar hafa þá samband við kaupanda og benda á mögulegar leiðir í boði.

Öryggi

Ecomar varðveitir ekki kreditkortanúmer sem gefin eru upp við kaup í netverslun. Þegar komið er að því að gefa upp kortaupplýsingar og ganga frá greiðslu er viðskiptavinur fluttur yfir á örugga greiðslusíðu. Allar greiðslur eru framkvæmdar í vottuðu umhverfi sem uppfyllir PCI DSS öryggisstaðal. Vefur Ecomar notast við SSL skírteini sem tryggir öryggi í gagnaflutningi og samskiptum. Það tryggir að utanaðkomandi aðilar geta ekki komist inn í upplýsingar og gögn sem streyma frá notendum vefsins.

Persónuvernd

Ecomar deilir ekki persónugreinanlegum gögnum til þriðja aðila.

Vefur Ecomar notast við Google Analytics til að safna ópersónugreinanlegum gögnum s.s. hvaðan heimsóknin kemur, hversu lengi vefurinn var skoðaður og hvaða efni er mest skoðað. Þessi gögn eru nýtt til að greina heimsóknir á vefinn og gera vefinn betri.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Ecomar á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Annað

Ecomar áskilur sér rétt til að fella niður pöntun ef nauðsynlegt reynist undir einhverjum kringumstæðum, það gæti m.a. gerst vegna ranga verðupplýsinga í netverslun eða að vara er ekki lengur fáanleg hjá birgja. Viðskiptavinur er upplýstur um slíkt eins fljótt og verða má.

Síun
Sort
display